Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 19. júní 2022 19:55
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Jonathan Glenn: Hlökkum til seinni helming mótsins
Jonathan Glenn, þjálfari ÍBV
Jonathan Glenn, þjálfari ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum auðvitað svekkt, en mér fannst við vera mjög skipulagðar í fyrri hálfleik og sköpuðum tvö eða þrjú mjög góð tækifæri og gáfum þeim mjög fá tækifæri á okkur," sagði Jonathan Glenn, þjálfari ÍBV, eftir 4-0 tap gegn Stjörnunni í dag.

„Fyrir utan langskotið sem þær skoruðu úr í lok hálfleiksins, sem ég held að hafi verið smá hnífur fyrir okkur, stelpunun leið þannig í hálfleik. En í seinni hálfleiknum reyndum við að mæta þeim svolítið hærra á vellinum en auðvitað er Stjarnan með gæðaleikmenn sem skoruðu þrjú góð mörk."


Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  0 ÍBV

Stjarnan skoraði tvö mörk með stuttu millibili í byrjun seinni hálfleiks. Glenn er ekki viss hvað fór úrskeiðis hjá sínum stelpum.

„Ég er ekki viss, mér fannst við vera svolítið óskipulagðar og það var ekki nógu mikil pressa á boltann. En ég held líka að leikjaálagið og þreytan hafi virkilega haft áhrif. Ég sá það frá síðasta leik og inn í þennan leik að stelpurnar eru mjög þreyttar, við erum að fást við meiðsli og leikbann þannig við vorum með fámennan hóp, 4-5 leikmenn á bekknum þannig þetta er búið að vera erfitt og við erum ánægð að fá pásu núna."

Glenn segist vera ánægður með stigasöfnunina í fyrra hluta mótsins.

„Já klárlega, það er það sem ég sagði stelpunum eftir leikinn. Við tökum það jákvæða með okkur og stelpurnar eru búnar að vera frábærar og við tökum það með okkur inn í pásuna og hlökkum til seinni helming mótsins," sagði Glenn.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, þar talar Glenn meðal annars um hvernig ÍBV liðið ætlar að nýta sér pásuna sem framundan er vegna EM kvenna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner