Belgíski miðjumaðurinn Youri Tielemans á bara eitt ár eftir af samningi sínum við Leicester, en núna eru meiri líkur á því en ekki að hann muni skrifa undir eins árs samning ofan á það.
Tielemans hefur verið orðaður við Arsenal í sumar en félagið er að ganga frá kaupum á portúgalska miðjumanninum Fabio Vieira. Arsenal mun líklega aðeins kaupa einn miðjumann í sumar og því er Tielemans ekki á leið þangað.
Leicester vill ekki missa miðjumanninn frítt og það er mikil virðing á milli leikmannsins og félagsins. Tielemans er því tilbúinn að skrifa undir eins árs samning í viðbót svo félagið geti fengið eitthvað fyrir sig.
Það er enn mikið eftir af sumrinu og margt sem getur skeð, en ef ekkert félag kaupir hann á því verði sem Leicester setur upp, þá eru góðar líkur á því að hann skrifi undir nýjan samning.
Talað hefur verið að biðja um 25 milljónir punda fyrir hinn 25 ára gamla Tielemans.
Athugasemdir