Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. júní 2022 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Rosengard og Kristianstad óstöðvandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Guðmundur Svansson

Rosengård er á fleygiferð í sænska boltanum og rúllaði yfir AIK í dag. 


Guðrún Arnardóttir var á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá Rosengard sem skóp sex marka sigur. Guðrún og stöllur eru með 39 stig eftir 15 umferðir.

Lærlingar Elísabetar Gunnarsdóttur í Kristianstad eru í þriðja sæti, sex stigum eftir Rosengard, eftir sigur gegn Piteå. Þær eru á blússandi siglingu og búnar að vinna síðustu sjö leiki í röð.

Delaney Pridham var í byrjunarliði Kristianstad og komu Amanda Andradóttir og Emelía Óskarsdóttir inn af bekknum í síðari hálfleik. Hlín Eiríksdóttir var þá í byrjunarliði Piteå sem siglir lygnan sjó eftir tapið, með 20 stig.

Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leikinn í flottum sigri Örebro á útivelli gegn Vittsjö. Berglind og stöllur eru með 18 stig.

Að lokum kom Katie Pingel inn af bekknum hjá Kalmar sem tapaði heimaleik gegn Djurgården.

AIK  0 - 6 Rosengård
0-1 S. Bredgaard ('33)
0-2 J. Cankovic ('45)
0-3 J. Cankovic ('48)
0-4 O. Schough ('56)
0-5 O. Schough ('64)
0-6 E. Berglund ('89)

Kristianstad 1 - 0 Piteå
1-0 E. Viens ('10)

Kalmar 0 - 1 Djurgården
0-1 J. Walentowicz ('36)

Vittsjö 1 - 2 Örebro
1-0 L. Sallström ('36)
1-1 J. Hellström ('38)
1-2 M. Kovacs ('40)


Stöðutaflan Svíþjóð Allsvenskan - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Rosengard W 2 2 0 0 8 1 +7 6
1 Uppsala W 26 4 7 15 32 50 -18 19
2 Kalmar W 26 0 3 23 10 106 -96 3
2 Hammarby W 2 2 0 0 3 1 +2 6
3 Djurgarden W 2 1 1 0 4 2 +2 4
4 Hacken W 2 1 1 0 5 4 +1 4
5 Pitea W 2 1 1 0 3 2 +1 4
6 Kristianstads W 2 1 0 1 4 4 0 3
7 Vaxjo W 2 1 0 1 3 3 0 3
8 Vittsjo W 2 1 0 1 2 5 -3 3
9 Linkoping W 2 0 2 0 1 1 0 2
10 Norrkoping W 2 0 1 1 5 6 -1 1
11 Brommapojkarna W 2 0 1 1 1 2 -1 1
11 Orebro W 1 0 0 1 0 1 -1 0
12 Trelleborg W 2 0 1 1 0 2 -2 1
13 KIF Orebro W 2 0 0 2 0 2 -2 0
14 AIK W 2 0 0 2 1 5 -4 0
Athugasemdir
banner