Króatíski sóknartengiliðurinn Nikola Vlasic er á leið á láni til Torino frá West Ham en þetta kemur fram í króatískum fjölmiðlum í dag.
Vlasic er 24 ára gamall og kom til West Ham frá CSKA Moskvu á síðasta ári en tókst engan veginn að finna sig hjá enska liðinu.
Hann spilaði 552 mínútur í 19 leikjum og gerði aðeins eitt mark en hann er nú á förum frá félaginu.
Samkvæmt króatískum fjölmiðlum hefur Torino komist að samkomulagi við West Ham um að fá hann á láni út leiktíðina.
Vlasic er fastamaður í króatíska landsliðinu og ákvað því að fara annað í leit að spiltíma til að vera klár fyrir HM í Katar.
Athugasemdir