Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 19. júlí 2018 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dalot missir af upphafi tímabilsins
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho er búinn að staðfesta að varnarmaðurinn ungi Diogo Dalot missir af fyrsta mánuði tímabilsins vegna hnémeiðsla.

Dalot er 19 ára portúgalskur bakvörður sem á yfir 50 leiki að baki fyrir yngri landsliðin.

Hann kemur úr uppeldisstarfi Porto og hefur leikið sex deildarleiki fyrir aðalliðið. Hann kostaði Rauðu djöflana 19 milljónir punda.

Dalot er með leikmannahópi United í Bandaríkjunum og gengur endurhæfingin vel samkvæmt Mourinho.

„Endurhæfingin gengur vel en Dalot verður ekki klár í slaginn fyrir upphaf tímabilsins. Við búumst við að sjá hann í fullu fjöri í september," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner