Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. júlí 2018 21:09
Ingólfur Páll Ingólfsson
Evrópudeildin: FH gerði jafntefli og fer áfram - AIK fer í næstu umferð
FH er komið áfram í næstu umferð.
FH er komið áfram í næstu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH 0 - 0 Lahti

FH mætti finnska liðinu Lahti í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. FH var í góðri stöðu fyrir leikinn eftir að hafa sigrað útileikinn með þremur mörkum gegn engu.

Fyrri hálfleikur var einstaklega bragðdaufur og það vantaði herslumuninn á síðasta fjórðungi vallarins hjá FH. FH hélt áfram að sækja í síðari hálfleik án þess að ná að koma boltanum í netið.

Gestirnir fengu nokkur færi í síðari hálfleik en gleymdu líklega að reima á sig markaskóna og áttu í basli með að skjóta boltanum á markið. Bragðdauft jafntefli niðurstaðan en FH er komið áfram í næstu umferð.

Þá komust Haukur Heiðar Hauksson og félagar í AIK áfram í næstu umferð. Shamrock Rovers var yfir eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja þar sem AIK vann fyrri leikinn einnig 0-1. AIK jafnatði metinn á 94. mínútu og hélt út. Haukur Heiðar kom inná á 109. mínútu leiksins.
Athugasemdir
banner
banner