Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 19. júlí 2018 21:09
Ester Ósk Árnadóttir
Kristján Ómar: Svíður inn að beinmerg
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Við komum slakari út í síðari hálfleikinn en þeir skarpari. Þeir fengu síðan víti dæmt á röngum tíma. Það er ekki að þeir hafi ekki átt að fá víti í þessum leik en þessi víti sem þeir fengu voru ekki víti en þeir áttu að fá víti einhver staðar annars staðar," sagði Kristján Ómar þjálfari Hauka eftir 4-1 tap á móti Þór á Akureyri en Haukar komust yfir í leiknum.

Lestu um leikinn: Þór 4 -  1 Haukar

Þór fékk tvær vítaspyrnur. Ármann Pétur tókst ekki að skora úr fyrri spyrnunni en Alvaro Montejo skoraði örugglega úr víti á 53 mínútu.

„Dómarinn náði að klúðra öllum vítaspyrnu- og ekki vítaspyrnudómum í þessum leik en það var á báða bóga. Þannig komust þeir inn í leikinn og stíga á bensíngjöfina á meðan við slökum meira á. Svo gerum við hraustlega upp á bakið í föstum leikatriðum."

Haukar leiddu 0-1 eftir fyrri hálfleikinn.

„Við þurftum að gera ýmsar breytingar á liðinu, veikindum, meiðslum og einhverju brasi þannig við vorum sáttir við fyrri hálfleikinn. Tempóið hélst þolanlega lágt og menn komust inn í hlutverk og stöður sem var bara flott. Svo snérist þetta bara við í seinni og þeir stíga á bensíngjöfina."

Haukar hafa fengið 28 mörk á sig í 12 leikjum.

„Áhyggjuefni er ekki rétta orðið, þetta svíður inn að beinmerg hjá mér sem varnarmanni í mínu eðli. Við erum bara á þeim stað að margir í mínu liði eru bara verulega óþroskaðir í ýmsum stöðum leiksins sem koma upp jafnt og þétt, föst leikatriði og annað slíkt. Þess vegna fáum við á okkur mörg mörk sérstaklega á móti ágætis liðum."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner