Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fim 19. júlí 2018 21:37
Egill Sigfússon
Óli Kristjáns: Erum að vinna í því að halda Viðari
Óli er kominn áfram í 2.umferð
Óli er kominn áfram í 2.umferð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH gerði 0-0 jafntefli við Lahiti í Kaplakrika í kvöld eftir að hafa unnið úti í Finnlandi 0-3. FH er því komið áfram í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar þar sem þeir mæta Apoel Haifa. Ólafur Kristjánsson þjálfari FH var að vonum sáttur með að vera kominn áfram svona þægilega.

Lestu um leikinn: FH 0 -  0 Lahti

„Mér fannst við byrja ögn passívír, Finnarnir breyttu um uppstillingu frá síðasta leik, þegar við náðum tökum á því þá vorum við að fá tækifæri til að skora mark. Yfir tvo leiki er ég ánægður að fara áfram 3-0"

Óli sagði að nú væri einbeitingin á Pepsí-deildinni þar sem þeir mæta Breiðablik á sunnudaginn í mikilvægum leik.

„Mér lýst vel á það, við setjum mannskap í að fara yfir það en við einbeitum okkur núna að Blika leiknum á sunnudaginn. Ég ætla ekkert að segja ef þetta og ef hitt, til þess að okkar gangi eftir verðum við að spila vel og vinna leikinn. Við förum í alla leiki til að vinna."

Cedric D'Ulvio er nálægt því að vera leikfær sem og Atli Viðar Björnsson en Ólafur segir að lengra sé í Bjarna Þór Viðarsson.

„Cedric er búinn að vera æfa með okkur og styttist í að hann fari að spila en það er lengra í Bjarna. Svo er Atli Viðar að glíma við smá hnjask í læri, annars er leikmannahópurinn í nokkuð góðu standi."

Geoffrey Castillion hefur mikið verið orðaður við brottför í glugganum en Ólafur segist vonast til að enginn leikmaður yfirgefi félagið og segir jafnframt að þeir ætli að reyna að halda Viðari Ara Jónssyni út tímabilið.

„Ég hef ekki heyrt um það, ég vona að það sé enginn að fara. Það er verið að vinna í þeim málum að halda Viðari út tímabilið."
Athugasemdir
banner
banner
banner