fim 19. júlí 2018 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pálmi Rafn spáir í 12. umferð í Inkasso-deildinni
Pálmi Rafn Pálmason.
Pálmi Rafn Pálmason.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Pálmi spáir Þórsurum öruggum sigri í kvöld.
Pálmi spáir Þórsurum öruggum sigri í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld hefst 12. umferðin í Inkasso-deild karla.

Pálmi Rafn Pálmason, markahæsti leikmaður KR í Pepsi-deild karla, spáir í leiki umferðarinnar.

Hér að neðan er spá Pálma.



Þór 3 - 0 Haukar (í kvöld klukkan 18:00)
Vinnusigur a la 603. Ármann Pétur með þrennu.

Selfoss 1 - 0 Fram (klukkan 19:15 í kvöld)
Stebbi Logi lokar búrinu Gilles Mbang klárar leikinn fyrir Selfyssinga.

Leiknir R. 1 - 1 ÍA (klukkan 19:15 í kvöld)
Stál í stál í Breiðholtinu. Fúsi nær í taktískt jafntefli gegn sterkum Skagamönnum.

Þróttur R. 2 - 0 Njarðvík (klukkan 19:15 annað kvöld)
sigur hjá Kötturum, Viktor Jónsson með bæði mörkin.

Magni 0 - 2 HK (klukkan 16:00 á laugardag)
HK-ingum líður vel á Norðurlandinu, Viktor Bjarki fylgir eftir nafna sínum Jónssyni og potar inn báðum.

Víkingur Ó. 1 - 2 ÍR (klukkan 16:00 á sunnudag)
Eftir frækinn bikarsigur verða Víkingarnir skotnir niður af rakettunni Axel Sig sem setur tvö.

Fyrri spámenn:
Björgvin Stefánsson (4 réttir)
Oliver Sigurjónsson (4 réttir)
Ásgeir Sigurgeirsson (3 réttir)
Bergsveinn Ólafsson (3 réttir)
Davíð Örn Atlason (3 réttir)
Guðjón Pétur Lýðsson (3 réttir)
Gunnar Þorteinsson (3 réttir)
Gunnar Helgason (2 réttir)
Málfríður Erna Sigurðardóttir (2 réttir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner