Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. júlí 2018 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Pogba: Áfram á hótelinu að borða helvítis pastað
Paul Pogba er Heimsmeistari!
Paul Pogba er Heimsmeistari!
Mynd: Getty Images
Paul Pogba hélt magnaða ræðu yfir franska landsliðinu fyrir erfiðan leik gegn Argentínu á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar.

Ljóst var að um erfitt verkefni væri að ræða og Pogba stóð upp og hafði sitt að segja við liðsfélagana fyrir 4-3 sigurinn en ræðan hefur nú lekið út í fjölmiðla og má sjá í myndbandi hérna neðst.

„Við viljum sjá stríðsmenn á vellinum í dag," má heyra Pogba segja.

„Ég vil ekki fara heim í kvöld, ég er að segja ykkur það, ég fer ekki heim í kvöld. ég ætla að vera áfram á þessu hóteli og borða þetta helvítis pasta!"

„Ég vil að við fögnum í kvöld. Ég vil að allir deyi á vellinum í dag. Það mun enginn bregðast hinum, við drepum þessa Argentínumenn, Messi eða ekki, mér gæti ekki verið meira sama. Við komum til að vinna þetta Heimsmeistaramót, klárum þetta drengir!"


Niðurstaðan varð auðvitað sú að Frakkar urðu svo Heimsmeistarar að lokum en myndbandið er hér að neðan.

Athugasemdir
banner
banner