fim 19. júlí 2018 13:47
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo til Juve komið í fimmta sæti á Instagram
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er vafalítið ein skærasta íþróttastjarna heims um þessar mundir en hann gekk til liðs við margfalda Ítalíumeistara Juventus á dögunum.

Ronaldo er svo vinsæll að hann er með rúmlega 330 milljón fylgjendur samanlagt á Facebook, Twitter og Instagram.

Eftir undirskriftina hjá Juve birti Ronaldo mynd af sér á Instagram í treyju liðsins og skrifaði Forza Juve! eða „Áfram Juve!" með myndinni.

Í dag eru þrír dagar liðnir frá myndbirtingunni á Instagram og er hún þegar komin í fimmta sæti yfir vinsælustu myndir frá upphafi samfélagsmiðilsins.

11.4 milljónum manna líkar við myndina sem stendur og er hægt að búast við því að þessi tala hækki umtalsvert næstu daga og vikur.

Bandaríska módelið Kylie Jenner er í fyrstu tveimur sætunum með myndir af dóttur sinni. Söngvarinn Justin Bieber er í þriðja sæti og vermir Ronaldo bæði fjórða og fimmta sætið.

Fæðing dóttur Ronaldo frá síðasta nóvember vermir fjórða sætið en Juventus tilkynningin er aðeins 400 þúsund 'líkum' á eftir fæðingunni.

Forza Juve! #FinoAllaFine

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner