Lettland U18 0 - 2 Ísland U18
0-1 Karl Friðleifur Gunnarsson ('29)
0-2 Þórður Gunnar Hafþórsson ('36)
0-1 Karl Friðleifur Gunnarsson ('29)
0-2 Þórður Gunnar Hafþórsson ('36)
Íslenska U18 landsliðið heimsótti það lettneska í æfingaleik í dag og uppskar góðan sigur.
Karl Friðleifur Gunnarsson og Þórður Gunnar Hafþórsson skoruðu sitthvort markið í fyrri hálfleik í 2-0 sigri.
Karl, fæddur 2001, lék sinn fyrsta Pepsi-deildarleik með Blikum í sumar á meðan Þórður Gunnar Hafþórsson, einnig fæddur 2001, hefur fengið góðan spilatíma með meistaraflokki Vestra síðasta árið.
Þórður hefur skorað 3 mörk í 29 leikjum í 2. deildinni og þá hefur hann gert eitt mark í tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum.
Athugasemdir