Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. júlí 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Afríkukeppnin í dag - Aðeins úrslitaleikurinn eftir
Mane fer fyrir sínum mönnum í Senegal.
Mane fer fyrir sínum mönnum í Senegal.
Mynd: Getty Images
Úrslitaleikur Afríkukeppninnar í Egyptalandi fer fram í kvöld þegar Senegal og Alsír mætast.

Senegal lagði Túnis eftir framlengingu og Alsír hafði betur gegn Nígeríu í undanúrslitum. Sadio Mane og félagar mæta Riyad Mahrez og félögum.

Senegal á möguleika á að vinna keppnina í fyrsta sinn og Alsír er að reyna að vinna hana í annað sinn - í fyrsta sinn síðan 1990.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00 að íslenskum tíma.

Leikur kvöldsins:
19:00 Sengal - Alsír
Athugasemdir
banner
banner
banner