Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 19. júlí 2019 13:08
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea tapaði fyrir Kawasaki Frontale
Leandro Damiao tryggði sigurinn
Leandro Damiao tryggði sigurinn
Mynd: Getty Images
Chelsea 0 - 1 Kawasaki Frontale
0-1 Leandro Damiao ('86 )

Frank Lampard og lærisveinar hans í Chelsea töpuðu fyrir japanska liðinu Kawasaki Frontale með einu marki gegn engu í J-League World Challenge mótinu í dag.

Eina mark leiksins gerði brasilíski framherjinn Leandro Damiao á 86. mínútu.

Damiao er nafn sem margir kannast við en hann var einn eftirsóttasti leikmaður heims árið 2012 er hann lék með Internacional. Enska félagið Tottenham Hotspur lagði fram nokkur tilboð í leikmanninn en þeim var öllum hafnað.

Þetta var þriðji æfingaleikur Chelsea en liðið gerði 1-1 jafntefli Bohemians áður en það vann St. Patricks Athletic 4-0.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner