Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. júlí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Félag frá Möltu í viðræðum við Ronaldinho
Ronaldinho og Eiður Smári Guðjohnsen í baráttunni. Þeir urðu síðar meir liðsfélagar hjá Barcelona.
Ronaldinho og Eiður Smári Guðjohnsen í baráttunni. Þeir urðu síðar meir liðsfélagar hjá Barcelona.
Mynd: Getty Images
Ronaldinho er einn besti fótboltamaður sem spilað hefur leikinn. Brasilíumaðurinn var engum líkur inn á vellinum.

Ronaldinho, sem gerði garðinn frægann með Barcelona og brasilíska landsliðinu, lagði skóna á hilluna á síðasta ári en gæti nú mögulega verið að taka þá aftur fram.

Samkvæmt Times Of Malta þá er Ronaldinho í viðræðum við Birkirkara þar í landi.

„Ég get staðfest að það er möguleiki á að Ronaldinho skrifi undir hjá Birkirkara," sagði Michael Valenzia, sem starfar hjá félaginu, við Times Of Malta.

Viðræður eru í gangi og spurning hvað gerist. Ronaldinho er orðinn 39 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner