Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að leikmenn liðsins vilji halda áfram að komast í sögubækurnar.
Liveprool vann Meistaradeildina á síðasta tímabili og Henderson segir að leikmenn vilji ólmir bæta við titlum á komandi tímabili.
Liveprool vann Meistaradeildina á síðasta tímabili og Henderson segir að leikmenn vilji ólmir bæta við titlum á komandi tímabili.
„Þetta hefur sýnt okkur hvernig er að vinna og við viljum meira af því," sagði Henderson.
„Við höfum sýnt að við getum unnið stóra titla og við viljum halda áfram að skrifa söguna hjá þessu félagi með þessu liði. Við erum mjög vongóðir um að við getum það."
Henderson og félagar í Liverpool eru í æfingabúðum í Bandaríkjunum en liðið mætir Dortmund í æfingaleik í nótt.
Athugasemdir