Varnarmaðurinn Orri Sveinn Stefánsson hefur framlengt samning sinn við Fylki til ársins 2022.
Orri var áður með samning sem átti að renna út eftir þetta tímabil.
Hinn 22 ára gamli Orri hefur spilað tíu leiki í Pepsi Max-deildinni í sumar en hann hefur bæði leikið í miðverði og hægri bakverði.
Orri hefur samtals skorað sex mörk í 91 meistaraflokksleik á ferli sínum en hann var í láni hjá Huginn 2015 og 2016.

Þá á Orri sex leiki að baki með U21 árs landsliði Íslands.
Gleðiefni fyrir Fylkismenn. Hinn grjótharði en ljúfi @OrriSegatta er búinn að gera nýjan samning við @fylkirmfl til ársins 2022 👍#pepsimaxdeildin #fylkir #fotboltinet pic.twitter.com/QFb8TVWVfv
— Hrafnkell Helgi Helgason (@HHelgason7) July 19, 2019
Athugasemdir