Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. júlí 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Treyjan hjá Huddersfield var grín - Engin auglýsing á henni
Svona leit treyjan út sem var kynnt í vikunni.
Svona leit treyjan út sem var kynnt í vikunni.
Mynd: Huddersfield Town
Huddersfield hefur staðfest að félagið verði með enga auglýsingu á búningi sínum fyrir komandi tímabil í Championship deildinni.

Í vikunni kynnti Huddersfield treyju sem vakti mikla athygli en hún var með auglýsingu frá veðmálafyrirtækinu Paddy Power.

Sjá einnig:
Leikmenn Huddersfield verða eins og fegurðardrottningar
Huddersfield refsað út af nýju treyjunni?

Treyjan vakti hörð viðbrögð og enska knattspyrnusambandið hótaði að refsa Huddersfield fyrir of stóra auglýsingu á treyjunni.

Í morgun staðfesti Huddersfield síðan að um grín hafi verið að ræða og að félagið verði með enga auglýsingu á treyjunni í ár.

Félagið segist styðja það að hafa engar auglýsingar á búningum.


Athugasemdir
banner