Eftir fjóra sigurleiki í röð lenti Fylkir á vegg gegn Íslandsmeisturum KR í kvöld. Atli Sveinn Þórarinsson, þjálfari Fylkis, segir svekkjandi að hans lið hafi ekki náð að sýna sínar bestu hliðar í leiknum.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 3 KR
„Við hefðum getað gert betur. Við áttum ekki okkar besta dag. KR-ingar voru flottir og við reyndum að laga ákveðna hluti í hálfleik en það gekk ekki eftir," segir Atli.
„Við hefðum viljað sýna okkar rétta andlit. KR-ingar gerðu sitt mjög vel. Við lærum bara af þessum leik."
Atli segir að það séu tvær vikur í að Ólafur Ingi Skúlason geti spilað á ný en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir