Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. júlí 2020 16:35
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið KR og Fylkis: Óskar Örn áfram á bekknum - Arnór Borg byrjar
Arnór Borg Guðjohnsen.
Arnór Borg Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 17:30 hefst leikur Fylkis og KR í sjöundu umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Breytingar á miðsvæðinu hjá Fylki. Nikulás Val Gunnarsson er veikur og Sam Hewson kemur inn í lið Fylkis. Arnór Borg Guðjohnsen sem kom af bekknum gegn FH og skoraði er í byrjunarliði Árbæinga, spilar fremstur. Hákon Ingi Jónsson fer á bekkinn.

KR-ingar stilla upp sama byrjunarliði og vann Fylki. Það þýðir að fyrirliðinn Óskar Örn Hauksson er áfram á bekknum. Pálmi Rafn Pálmason er með fyrirliðabandið.

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Sam Hewson
7. Daði Ólafsson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
14. Þórður Gunnar Hafþórsson
20. Arnar Sveinn Geirsson
23. Arnór Borg Guðjohnsen
24. Djair Parfitt-Williams

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
8. Finnur Orri Margeirsson
10. Pálmi Rafn Pálmason (f)
11. Kennie Chopart
16. Pablo Punyed
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Kristinn Jónsson
21. Kristján Flóki Finnbogason
23. Atli Sigurjónsson
29. Stefán Árni Geirsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner