Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. júlí 2020 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gata í Leeds nefnd í höfuðið á Marcelo Bielsa
Marcelo Bielsa.
Marcelo Bielsa.
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Marcelo Bielsa er í guðatölu hjá stuðningsmönnum Leeds eftir að hafa komið liðinu upp í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik.

Leeds verður í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir alltof langa fjarveru; fjórtán ára fjarveru.

Bielsa, sem er magnaður knattspyrnustjóri, tók við Leeds fyrir tveimur árum. Hann kom liðinu í umspil í fyrra og núna fara Leedsarar upp sem meistarar.

Argentínumanninum hefur heldur betur verið þakkað fyrir sín störf.

Gata í Leeds hefur verið nefnd í höfuðið á honum eins og sjá má hér að neðan.

Leeds á leik gegn Derby County í Championship-deildinni í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner