Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Utah Royals féllu úr leik í NWSL Challenge Cup í Bandaríkjunum í gærnótt.
Liðið tapaði í vítaspyrnukeppni fyrir Houston Dash. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og var farið í beint í vítaspyrnukeppni þar sem Houston hafði betur. Gunnhildur tók ekki vítaspyrnu fyrir Utah.
Átta lið bandarísku kvennadeildarinnar taka þátt á mótinu sem allt var haldið í Utah. Mótið var spilað í stað deildarinnar sem var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.
Öll lið mótsins spiluðu fjóra leiki og svo var farið í 8-liða úrslitin. Utah vann einn leik, gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur. Liðið tapaði svo í vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslitunum.
Gunnhildur Yrsa er 31 árs gömul og hefur leikið með Utah Royals í Bandaríkjunum frá 2018. Hún á að baki 71 A-landsleik fyrir Ísland og hefur hún í þeim skorað tíu mörk.
"Couldn't be more proud. I told them, win or lose, I love you, girls." pic.twitter.com/XkzRESnTcX
— Utah Royals FC (@UtahRoyalsFC) July 18, 2020
Athugasemdir