Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. júlí 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rebic gagnrýnir Higuain og Bernardeschi: Gráta of mikið
Rebic og Zlatan Ibrahimovic.
Rebic og Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: Getty Images
Ante Rebic, sóknarmaður AC Milan, er ekki hrifinn af leikstíl kollega sinna hjá Ítalíumeisturum Juventus.

Hann gagnrýnir þá Federico Bernardeschi og Gonzalo Higuain í viðtali við Sportweek.

„Það eru tvær gerðir af Rebic," segir hann. „Utan vallar er ég rólegur og hlédrægur. Innan vallar breytist ég í annan mann. Í leiknum gegn Juventus (sem Milan vann 4-2) sagði ég eitt við Higuain."

„Ég er ekki aðdáandi leikmanna eins og hans, sem eru stórir og sterkir en liggja svo í jörðinni í þrjár mínútur í hvert skipti sem þeir eru snertir. Það sama á við um Bernardeschi."

„Það er mikið brotið á Ibra en hann stendur alltaf upp og heldur áfram. Aðrir gráta of mikið."
Athugasemdir
banner