Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 19. júlí 2021 18:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið lið Leiknis og Stjörnunnar: Hjalti byrjar hjá Leikni
Hjalti er í byrjunarliði Leiknis.
Hjalti er í byrjunarliði Leiknis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir og Stjarnan mætast í 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar í leik sem hefst klukkan 19:15 á Domusnovavellinum í Breiðholti í kvöld.

Eitt stig skilur liðin að í deildinni en Leiknir er með stigi meira en Stjarnan. Leiknir vann síðasta deildarleik sinn, 2-0, gegn ÍA fyrir viku síðan. Stjarnan tapaði síðasta deildarleik sínum, 2-3, gegn Keflavík fyrir tveimur vikum síðan. Frá þeim leik hefur Stjarnan leikið tvo leiki í Sambandsdeildinni og er úr leik eftir einvígi við írska liðið Bohemians.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum!!

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, gerir X breytingar á sínu liði frá leiknum gegn ÍA. Daníel Finns Matthíasson tekur út leikbann. Hjalti Sigurðsson byrjar sinn fyrsta leik í efstu deild sem leikmaður Leiknis og Dagur Austmann kemur inn í liðið eftir meiðsli. Loftur Páll Eiríksson er ekki í leikmannahópi Leiknis.

Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Keflavík. Fyrirliðinn Daníel Laxdal kemur inn og Casper Sloth kemur einnig inn. Tristan Freyr Ingólfsson er á bekknum en Eyjólfur Héðinsson er ekki með, hann er í liðsstjórn í dag.

Byrjunarlið Leiknis:
12. Guy Smit (m)
3. Ósvald Jarl Traustason
4. Bjarki Aðalsteinsson
5. Daði Bærings Halldórsson
7. Máni Austmann Hilmarsson
10. Sævar Atli Magnússon (f)
11. Brynjar Hlöðversson
15. Hjalti Sigurðsson
18. Emil Berger
19. Manga Escobar
23. Dagur Austmann

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
6. Magnus Anbo
7. Einar Karl Ingvarsson
9. Daníel Laxdal (f)
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
21. Elís Rafn Björnsson
22. Emil Atlason
23. Casper Sloth

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum!!
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner