Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 19. júlí 2021 10:50
Elvar Geir Magnússon
Juventus að vinna baráttuna við Arsenal um Locatelli
Manuel Locatelli.
Manuel Locatelli.
Mynd: EPA
Juventus er að vinna baráttuna við Arsenal um ítalska landsliðsmanninn Manuel Locatelli.

Þessi 23 ára leikmaður vill spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili og efst á blaði hjá honum er að fara til Juventus.

Locatelli er leikmaður Sassuolo en hann skoraði tvö mörk á EM alls staðar og hjálpaði Ítalíu að vinna mótið með glæsibrag.

Arsenal er tilbúið að borga uppsett verð fyrir leikmanninn en hans vilji er að vera áfram hjá Ítalíu.

Locatelli fór til Sassuolo frá AC Milan 2019.

Arsenal er að nálgast kaup á Ben White, varnarmanni Brighton, en félagið hefur þegar tryggt sér Nuno Tavares, varnarmann frá Benfica.
Athugasemdir
banner
banner
banner