Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 19. júlí 2021 13:00
Elvar Geir Magnússon
Sergino Dest orðaður við Arsenal
Mynd: Getty
Það má búast við einhverjum breytingum á leikmannahópi Arsenal áður en nýtt tímabil hefst. Hector Bellerín er meðal leikmanna sem gætu fært sig um set en sala til Inter er í kortunum.

Enskir fjölmiðlar segja að Arsenal horfi til Sergino Dest, leikmanns Barcelona. Taið er að Juventus og Bayern München hafi einnig áhuga á Bandaríkjamanninum.

Hann er verðmetinn á 25,7 milljónir punda.

Dest ku vilja vera áfram hjá Barcelona en hann fékk mikinn spiltíma undir stjórn Ronald Koeman á síðasta tímabili.

Barcelona vill þó fá inn fjármagn til að geta gengið frá nýjum samningi við Lionel Messi, létt á launakostnaði og keypt leikmenn.
Athugasemdir
banner
banner