Gríntilboð í Ederson - Trafford gæti verið á heimleið - Simons í ensku úrvalsdeildina?
   lau 19. júlí 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
EM kvenna í dag - Þær sigursælustu mæta Frökkum
EM KVK 2025
Mynd: EPA
Síðasti leikur átta liða úrslitanna á EM kvenna fer fram í kvöld.

Frakkland mætir Þýskalandi en Þýskaland er sigursælasta lið keppninnar. Liðið hefur unnið EM átta sinnum en síðasti titilinn kom árið 2013. Það var sjötti sigur liðsins í röð á mótinu.

Frakkar hafa aldrei komist í úrslit en hafa nælt í eitt brons sem sem var á síðasta móti árið 2022 á Englandi.

Þýskaland hafnaði í 2. sæti í C-riðli á eftir Svíþjóð en Frakkland vann D-riðilinn en England hafnaði í 2. sæti.

EM kvenna
19:00 Frakkland - Þýskaland
Athugasemdir
banner
banner