Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 19. ágúst 2018 19:27
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Augnablik heldur pressu á Tindastól
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Augnablik 3 - 0 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.
1-0 Tinna Harðardóttir ('10)
2-0 Tinna Harðardóttir ('52)
3-0 Birta Birgisdóttir ('57)

Augnablik heldur pressunni á Tindastól í toppbaráttu 2. deildar kvenna.

Augnablik hafði betur gegn sameinuðu liði Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis Fáskrúðsfirði í dag.

Tinna Harðardóttir gerði fyrsta markið snemma leiks og tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari hálfleiks, skömmu áður en Birta Birgisdóttir gerði út um leikinn.

Augnablik er í öðru sæti, þremur stigum eftir toppliði Tindastóls. Augnablik á leik til góða og er með betri markatölu.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner