Skautafélag Reykjavíkur hafði betur gegn Herði frá Ísafirði í B-riðli fjórðu deildar í dag.
Andri Jónsson setti þrennu fyrir Skautafélagið á meðan Axel Sveinsson gerði eina mark Ísfirðinga.
Liðin eru í neðri hluta riðilsins þegar aðeins ein umferð er eftir af tímabilinu.
Geisli í Aðaldal hafði þá betur gegn Kríu í D-riðli með þremur mörkum gegn einu.
Geisli er þar með kominn af botni riðilsins en er sjö stigum eftir Kríu.
B-riðill:
Hörður Í. 1 - 4 SR
0-1 Andri Jónsson ('6)
0-2 Andri Jónsson ('51)
1-2 Axel Sveinsson ('67)
1-3 Andri Jónsson ('75)
1-4 Aron Dagur Heiðarsson ('79)
D-riðill:
Geisli A. 3 - 1 Kría
0-1 Jóhann Páll Ástvaldsson ('52)
1-1 Ágúst Örn Víðisson ('55)
2-1 Hreggviður Heiðberg Gunnarsson ('62)
3-1 Viðar Guðbjörn Jóhannsson ('90)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir