Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. ágúst 2018 17:05
Ívan Guðjón Baldursson
Búlgaría: Hólmar á toppinn eftir sigur í nágrannaslag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Levski Sofia 2 - 0 Septemvri Sofia
1-0 Davide Mariani ('23)
2-0 Stanislav Kostov ('29)

Hólmar Örn Eyjólfsson er mikilvægur hlekkur í hjarta varnarinnar hjá Levski Sofia í búlgarska boltanum.

Levski fékk nágranna sína Septemvri Sofia í heimsókn í dag og vann góðan 2-0 sigur þökk sé mörkum frá Davide Mariani og Stanislav Kostov í fyrri hálfleik.

Levski er á toppi deildarinnar, með 13 stig eftir 5 umferðir, en CSKA Sofia kemur í öðru sæti. CSKA er einu stigi á eftir og á leik til góða síðar í dag, á útivelli gegn sterku liði Ludogorets.
Athugasemdir
banner
banner