Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. ágúst 2018 16:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Brentford að fara vel af stað
Maupay kom Brentford á bragðið.
Maupay kom Brentford á bragðið.
Mynd: Getty Images
Brentford 2 - 0 Sheffield Wed
1-0 Neal Maupay ('21 , víti)
2-0 Ollie Watkins ('61 )

Það var einn leikur í Championship-deildinni í dag en þar mættust Brentford og Sheffield Wednesday á heimavelli fyrrnefnda liðsins.

Franski sóknarmaðurinn Neal Maupay kom Brentford yfir úr vítaspyrnu á 21. mínútu og var staðan í leikhléinu 1-0 fyrir heimamenn í Brentford.

Þegar stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleiknum skoraði Ollie Watkins annað mark Brentford og þar við sat.

Lokatölur 2-0 fyrir Brentford sem er komið upp í fjórða sæti deildarinnar með sjö stig. Sheffield Wednesday er í 21. sæti með eitt stig eftir þrjár umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner