sun 19. ágúst 2018 18:29
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: Annað tap Bröndby í röð
Mynd: Getty Images
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar í óvæntu tapi Bröndby gegn Esbjerg í danska boltanum í dag.

Yuri Yakovenko gerði eina mark leiksins undir lokin eftir að heimamenn höfðu sótt stíft nánast allan leikinn.

Þetta er annað tap Bröndby í röð og er liðið í fjórða sæti, þremur stigum frá toppliði Kaupmannahafnar sem var að gera jafntefli við Århus.

Björn Daníel Sverrisson sat allan tímann á bekknum hjá Århus sem er um miðja deild. Þá kom Felix Örn Friðriksson ekki við sögu er Vejle tapaði fyrir Nordsjælland.

Bröndby 0 - 1 Esbjerg
0-1 Y. Yakovenko ('85)

Århus 1 - 1 Kaupmannahöfn
1-0 J. Stage ('38)
1-1 V. Fischer ('90)

Nordsjælland 2 - 0 Vejle
1-0 A. Skov Olsen ('8)
2-0 J. Amon ('92)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner