Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. ágúst 2018 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England í dag - Manchester liðin eiga leiki
Jóhann Berg og félagar mæta Watford
Manchester United heimsækir Brighton í dag.
Manchester United heimsækir Brighton í dag.
Mynd: Getty Images
Það eru þrír leikir á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag, sex leikir fóru fram í gær og 2. umferð lýkur svo annað kvöld með leik Crystal Palace og Liverpool.

Klukkan 12:30 verður flautað til leiks í viðureign Manchester City og Huddersfield, Englandsmeistararnir heimsóttu Arsenal í fyrstu umferð þar sem þeir bláu sigruðu en Huddersfield fékk hins vegar Chelsea í heimsókn en niðurstaðan í þeim leik var 0-3 sigur gestanna í Chelsea.

Á sama tíma og Manchester City og Huddersfield mætast, eigast við Burnley og Watford. Heimamenn í Burnley eru með eitt stig eftir fyrstu umferðina en þeir heimsóttu Southampton en þeim leik lauk með markalausu jafntefli, Watford sigraði hins vegar Brighton nokkuð örugglega 2-0.

Lokaleikur dagsins er viðureign Brighton og Manchester United en flautað verður til leiks þar klukkan 15:00. Brighton eins og fyrr segir tapaði í fyrstu umferð en Manchester United sigraði Leicester á Old Trafford, 2-1.

Sunnudagur 19. ágúst
12:30 Burnley - Watford
12:30 Manchester City - Huddersfield (Stöð 2 Sport)
15:00 Brighton - Manchester United (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner