Það er spennandi dagur framundan í íslenska boltanum en þrír leikir eru á dagskrá í Pepsi-deild karla og þar að auki er leikið í Inkasso-deild karla, 2. deild kvenna og 4. deild karla.
Spennan eykst með hverri umferð í Evrópubaráttunni og það er ljóst að 4. sætið mun einnig gefa Evrópusæti í ár. Breiðablik, Valur og Stjarnan eru í efstu þremur sætunum og eru með nokkuð gott forskot á liðin þar fyrir neðan.
KA og KR eru meðal þeirra liða sem eru í Evrópubaráttu en liðin mætast á Akureyrarvelli í dag en flautað verður til leiks þar klukkan 16:00.
Klukkan 18:00 fær Grindavík, Stjörnuna í heimsókn. Grindvíkingar sitja í 6. sæti Pepsi-deildarinnar með 23 stig en Stjarnan er í heldur betri málum í 3. sæti. Á sama tíma fær Fylkir, sem er í fallbaráttu, FH í heimsókn sem er í Evrópubaráttu.
Í Inkasso-deildinni fer fram einn leikur þar sem Fram tekur á móti Njarðvík. Í 4. deild karla fara fram tveir leikir í dag, Geisli A. fær Kríu í heimsókn og klukkutíma síðar hefst leikur Harðar Í. og SR.
Augnablik fær Fjarðabyggð/Hött/Leikni í heimsókn í dag í 2. deild kvenna en það er eini leikur dagsins í deildinni.
Sunnudagur 19. ágúst
Pepsi-deild karla
16:00 KA-KR (Akureyrarvöllur) (Stöð 2 Sport 2)
18:00 Grindavík-Stjarnan (Grindavíkurvöllur) (Stöð 2 Sport 2)
18:00 Fylkir-FH (Floridana völlurinn)
Inkasso deildin - 1. deild karla
14:00 Fram-Njarðvík (Laugardalsvöllur)
2. deild kvenna
14:00 Augnablik-Fjarðab/Höttur/Leiknir (Smárinn)
4. deild karla - B-riðill
15:00 Hörður Í.-SR (Olísvöllurinn)
4. deild karla - D-riðill
14:00 Geisli A-Kría (Geislavöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir