Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 19. ágúst 2018 07:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mitrovic: Höfum ekki efni á að gera svona mistök
Aleksandar Mitrovic.
Aleksandar Mitrovic.
Mynd: Getty Images
Fulham heimsótti Tottenham í gær þar sem niðurstaðan var 3-1 sigur heimamanna. Aleksandar Mitrovic framherji Fulham skoraði eina mark þeirra í gær, hann var skiljanlega svekktur í leikslok.

„Við áttum fína kafla í leiknum í dag og sköpuðum okkur fín færi sem við hefðum átt að nýta betur."

„Þegar við erum að spila við stóruliðin þá höfum við einfaldlega ekki efni á því að gera mistök og við gerðum allt of mörg mistök í dag."

„Við erum vonsviknir en nú er ekkert annað að gera en að fara hugsa um næsta leik," sagði Mitrovic að lokum.

Fulham er stigalaust eftir fyrstu tvo leikina en þeir fá Burnley í heimsókn um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner