Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. ágúst 2018 10:20
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho reiknar með því að Darmian verði áfram
Matteo Darmian.
Matteo Darmian.
Mynd: Getty Images
Ítalinn Matteo Darmian leikmaður Manchester United hefur verið orðaður við brottför frá félaginu í sumar en Jose Mourinho greindi frá því á blaðamannafundi fyrir helgi að hann reiknaði með því að Darmian yrði áfram.

„Ég reikna ekki með því að hann fari," sagði Mourinho.

„Hann getur ekki verið ósáttur því að dyrnar voru opnar fyrir hann ef hann vildi fara en ég get ekki annað sagt en ég sé ánægður með að halda honum. "

„Hann skilar alltaf sínu fyrir liðið sama í hvaða stöðu hann spilar, hann er frábær atvinnumaður, " sagði Mourinho um þennan 28 ára gamla Ítala sem hefur verið hjá Manchester United frá árinu 2015.

„Hann er vinsæll í hópnum, það eru góðar fréttir ef Matteo verður áfram."

Athugasemdir
banner
banner
banner