Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   sun 19. ágúst 2018 20:36
Arnar Daði Arnarsson
Óli Stefán: Trúið þið því núna að þið séuð nógu góðir?
Óli Stefán.
Óli Stefán.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var hörkuleikur og ég er gríðarlega ósáttur að vinna ekki þennan leik. Við sköpuðum okkur frábærar stöður í þessum leik og gerðum vel að undirbúa þeirra styrkleika," sagði Óli Stefán Flóventsson þjálfari Grindavíkur eftir 2-2 jafntefli á heimavelli gegn Stjörnunni í 17. umferð Pepsi-deildar karla.

Lestu um leikinn: Grindavík 2 -  2 Stjarnan

„Ég er ótrúlega vonsvikinn að við skulum ekki hafa farið betur með tækifærin sem við fengum í þessum leik," sagði Óli Stefán sem var virkilega pirraður eða réttara sagt, brjálaður á hliðarlínunni í aðdraganda marks númer tvö hjá Stjörnunni þegar Grindvíkingar misstu boltann í frábæru tækifæri sjálfir til að komast yfir í leiknum í sókninni á undan.

„Við erum í þeirri stöðu að við þurfum að nota þessi tækifæri. Við höfum unnið og undirbúið okkur mikið fyrir það að klára þessi tækifæri. Við erum að spila við mjög gott lið og þessi tækifæri verðum við að nýta til að ná í sigra úr þessum leikjum. Ég er afskaplega óánægður að sigra ekki í dag."

Will Daniels jafnaði síðan metin fyrir Grindavík á 90. mínútu.

„Ég er ánægður með innkomuna hjá Will Daniels. Ég setti hann inn til að skora, reyndar sigurmark en hann kom svo sannarlega til bjargar og kláraði eina af þessum mörgum færum sem við fengum."

„Við undirbjuggum okkur ótrúlega vel í þessari viku og við ætluðum okkur að vinna þennan leik. Það var ekkert annað í okkar undirbúningi en sigur hér í dag. Við virkilega trúðum á það. Ég smalaði strákunum saman inn í klefa eftir leik og spurði þá þessara spurningar: Trúi þið því núna að þið séuð nógu góðir, trúi þið því að þið getið verið í toppbaráttu, trúi þið því að þið getið unnið topplið og mér finnst með þessari frammistöðu í dag að þeir hafi svarað þessum spurningum mjög vel.”

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner