Spænski miðjumaðurinn David Silva skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni.
Silva skoraði fjórða mark City í leiknum og var það ekki af verri gerðinni.
Smelltu hér til að sjá stórglæsilegt mark David Silva í dag.
Þetta var sérstakur dagur fyrir Spánverjann en fyrir leik fékk hann að mæta með son sinn sem fæddist langt fyrir tímann. Sonur hans hafði verið á spítala í fimm mánuði en er að koma til.
Sjá einnig:
Mynd: Sonur David Silva nógu hraustur til að fara á völlinn
David Silva er fínn.
— Gummi Ben (@GummiBen) August 19, 2018
Athugasemdir