Kjartan Henry Finnbogason lék síðustu 20 mínúturnar þegar Ferencvaros gerði jafntefli í ungversku deildinni í gærkvöldi.
Þetta var fyrsti leikurinn í deildinni sem Ferencvaros vinnur ekki. Ferencvaros komst yfir eftir tvær mínútur en andstæðingar þeirra, lið Paksi SE, jafnaði undir lok fyrri hálfleiks.
Kjartan kom inn á þegar 20 mínútur voru eftir en honum tókst ekki að hjálpa Fernecvaros að landa sigrinum.
Kjartan gekk í raðir Ferencvaros, sem er sigursælasta liðið í Ungverjalandi, í sumar. Hann kom til Ungverjalands frá Horsens í Danmörku. Kjartan sagði í viðtali viðtali við Fótbolta.net í apríl að toppnum væri náð hjá Horsens.
Kjartan hefur komið inn á sem varamaður í fjórum af fyrstu fimm deildarleikjum tímabilsins.
Ferencvaros er á toppi deildarinnar með 13 stig úr fimm leikjum.
Athugasemdir