Georginio Wijnaldum, miðjumaður Liverpool, hefur engar áhyggjur af því að mistök markvarðarins Adrian gegn Southampton um helgina muni trufla hann í næstu leikjum.
Adrian gaf Southampton mark í 2-1 sigri Liverpool en hnan sparkaði þá í Danny Ings og í netið.
Adrian gaf Southampton mark í 2-1 sigri Liverpool en hnan sparkaði þá í Danny Ings og í netið.
„Svona hlutir geta gerst hjá markvörðum. Á síðasta tímabili gerðist þetta hjá Alisson gegn Leicester City snemma á tímabilinu og í æfingaleik," sagði WIjnaldum.
„Hvernig mun hann (Adrian) bregðast við mistökunum? Ég held að það sé mikilvægara en mistökin sjálf."
„Allir geta gert mistök, líka markverðir. Hann er markvörður og ef hann gerir mistök þá mun það oft kosta mark."
Athugasemdir