Eden Hazard er ekki í leikmannahópi Chelsea sem fór til Grikklands í dag fyrir leikinn gegn PAOK í Evrópudeildinni annað kvöld.
Hazard, sem hefur byrjað tímabilið frábærlega, fær frí í leiknum en hann var eftir heima í Englandi.
Hazard, sem hefur byrjað tímabilið frábærlega, fær frí í leiknum en hann var eftir heima í Englandi.
David Luiz, Mateo Kovacic og Emerson Palmieri ferðuðust heldur ekki með Chelsea en 21 leikmaður fór með liðinu til Grikklands.
Næsti leikur Chelsea í ensku úrvalsdeildinni er Lundúnarslagur gegn West Ham á sunnudaginn.
Athugasemdir