Stjarnan varð Íslandsmeistari í 4. flokki karla í A og B liðum í síðustu viku.
A liðið vann Breiðablik 2-0 í úrslitaleik að viðstöddum 400 áhorfendum á Samsung vellinum. Mörk Stjörnunar skoruðu þeir Adolf Daði Birgisson og Eyþór Örn Eyþórsson.
B lið Stjörnunar varð einnig Íslandsmeistari þegar þeir unnu Hauka 2-1 í úrslitaleik. Bæði mörk Stjörnunar skoraði Emil Nói Sigurhjartarson. Gabríel Ingi Helgason skoraði mark Hauka.
Þjálfarar Stjörnunar eru þeir Ragnar Örn Traustason, Eiður Ben Eiríksson, Jóhann Bergur Kiesel og Andrés Már Logason.
Athugasemdir