Bjarni Ólafur Eiríksson, leikjahæsti leikmaður Vals frá upphafi, ætlar að taka eitt tímabil í viðbót. Hvort það verði í Val mun koma í ljós en Bjarni hefur spilað allan sinn feril með félaginu. Hann er alveg til í að skoða einhver ævintýri.
„Er ekki best að segja sem minnst. Samningurinn minn rennur út eftir tímabilið og við sjáum til hvort ég verði í Val áfram eða færi mig um set. Ég er alveg opinn fyrir öllu," segir Bjarni.
Hann hefur verið orðaður við Vestra þar sem fjölskylda hans er ættuð og Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra, vinnur með föður Bjarna. Þá er ÍBV búið að slá á þráðinn og kanna hug hans að koma til Eyja.
„Ég er ekkert að stressa mig þannig lagað. Ég elska ennþá að spila fótbolta og líkaminn er í góðu ástandi. Ég tel að ég hafi eitthvað fram að færa, hvort sem það er í efstu deild eða deildunum þar fyrir neðan. Fyrst maður getur spilað fótbolta og hefur gaman af því er engin ástæða til að hætta. Ég setti skóna aðeins upp í hillu í fyrra og fann þá að ég saknaði þess að æfa," segir Bjarni.

Bjarni ætlaði að hætta síðasta vetur en skórnir fóru ekki upp í hilluna og hann hefur spilað með Val í sumar. Hann er 37 ára og hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari með Val og bikarmeistari tvisvar.
Athugasemdir