Slóvakinn Milan Skriniar hefur frestað því að skrifa undir nýjan samning við Inter.
Manchester United hefur áhuga á miðverðinum öfluga.
Manchester United hefur áhuga á miðverðinum öfluga.
Skriniar er 23 ára og hefur heillað með frammistöðu sinni í ítalska boltanum.
Það gæti kostað United um 60 milljónir punda að fá Skriniar frá Mílanó og líklegt er að félagið myndi fá samkeppni um gæjann.
Mourinho reyndi að bæta við miðverði á liðnu sumri en var sár og svekktur þegar það mistókst. Varnarleikur United hefur ekki verið sannfærandi á tímabilinu.
Athugasemdir