Víðir Þorvarðarson skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV nú á dögunum.
Víðir kom aftur heim í lok júlí, frá Þrótti, og kláraði tímabilið með liðinu sem endaði í 6. sæti Pepsi-deildarinnar.
Víðir kom aftur heim í lok júlí, frá Þrótti, og kláraði tímabilið með liðinu sem endaði í 6. sæti Pepsi-deildarinnar.
„Við óskum Víði og stuðningsmönnum ÍBV til hamingju með samninginn og hlökkum til komandi samstarfs," segir á heimasíðu ÍBV.
Víðir er 26 ára kantmaður.
Kristján Guðmundsson lét af störfum sem þjálfari ÍBV eftir tímabilið en hinn portúgalski Pedro Hipolito tók við. Hipolito var þjálfari Fram.
Athugasemdir