banner
   mið 19. október 2022 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bella-Kotchap frá næstu vikurnar - Caleta-Car þarf að stíga upp
Caleta-Car í leik með Marseille
Caleta-Car í leik með Marseille
Mynd: EPA

Armel Bella-Kotchap hefur komið gríðarlega sterkur inn í lið Southampton en hann gekk til liðsins í sumar frá Bochum.


Hann verður hins vegar frá næstu 2-3 vikurnar en hann fór úr axlarlið í leik liðsins gegn West Ham um helgina.

Duje Caleta-Car kom inn á fyrir hann í leiknum og byrjar væntanlega sinn annan leik fyrir félagið í kvöld þegar liðið mætir Bournemouth.

Ralf Hasenhuttl stjóri Southampton segir að Caleta-Car þurfi að stíga upp. Þessi 26 ára gamli Króati gekk til liðs við félagið á lokadegi félagsskiptagluggans frá Marseille.

„Mér finnst hann vanta ryþma og sjálfstraust. Við höfum reynt að byggja það upp hjá honum og nú er mikilvægt að hann stígi upp og sýni hversu mikilvægur hann getur verið fyrri okkur með boltann en einnig með gæðunum í loftinu sóknar og varnarlega. Hann er klárlega leikmaður sem við vonumst til að geti leyst Armel vel af," sagði Hasenhuttl.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner