Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 19. október 2022 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gakpo: Ég talaði nokkrum sinnum við Ten Hag
Gakpo í leik með PSV.
Gakpo í leik með PSV.
Mynd: EPA
Cody Gakpo, kantmaður PSV Eindhoven, segist hafa rætt við Erik ten Hag, stjóra Manchester United, í sumar.

Gakpo var sterklega orðaður við Man Utd sem og fleiri félög í sumar. Hann endaði hins vegar á því að vera áfram í PSV.

„Ég var nálægt því að fara frá PSV. Ég talaði nokkrum sinnum við Erik ten Hag hjá Manchester United, en það gekk að lokum ekki upp," sagði Gakpo við The Times.

„Það var synd. Man Utd er eitt stærsta félagið í heimi," sagði hann jafnframt.

Gakpo hefur verið ótrúlega öflugur með PSV í byrjun tímabilsins; hann er búinn að skora 13 mörk og leggja upp ellefu í 17 leikjum. Hann mun fara í stærra félag innan skamms ef hann heldur svona áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner