Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 19. október 2022 09:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Greenwood sleppt úr haldi síðar í dag
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood verður sleppt úr gæsluvarðhaldi síðar í dag eftir að það var samþykkt í dómssal að veita honum lausn gegn tryggingu.

Greenwood er ákærður fyrir fyrir tilraun til nauðgunar, fyrir ofbeldisfulla hegðun og fyrir að hafa ráðist á fyrrum kærustu sína, Harriet Robson. Hún tók upp myndbönd og myndir af Greenwood sem fóru á netið í janúar mánuði á þessu ári.

Hinn 21 árs gamli Greenwood, sem var fyrir ári síðan einn mest spennandi fótboltamaður heims, mætti fyrir rétt fyrr í vikunni. Þá var talað um það að Greenwood yrði í gæsluvarðhaldi í meira en mánuð.

Hann braut skilorð sitt um liðna helgi er hann hafði samband við þolanda sinn. Var hann þá handtekinn á nýjan leik. Var talað um að hann yrði á bak við lás og slá í meira en mánuð eftir að hafa brotið tryggingarskilyrði en lögmenn hans áfrýjuðu því og fengu því breytt.

Greenwood verður sleppt síðar úr haldi í dag með ákveðnum skilyrðum; hann má ekki hafa samband við fórnarlamb sitt né vitni í málinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner