Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 19. október 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Myndband: Stuðningsmenn Lyon stoltir af Benzema
Mynd: Getty Images

Stuðningsmenn Lyon eru mjög stoltir af Karim Benzema en þeir gengu um götur í gær til að fagna sínum manni sem vann Gullknöttinn á mánudaginn.


Benzema skoraði 66 mörk í 148 leikjum og vann sjö titla með Lyon frá 2004-2009 en hann er uppalinn hjá félaginu.

Hann hefur leikið með Real Madrid allar götur síðan. Þar hefur hann leikið 421 leiki og skorað 223 mörk. Hann hefur orðið spænskur meistari fjórum sinnum og unnið Meistaradeildina fimm sinnum.

Þetta var í fyrsta sinn sem hann vann Gullknöttinn en hann var í algjöru lykilhlutverki er Real Madrid vann bæði spænsku deildina og Meistaradeildina á síðustu leiktíð. Hann raðaði inn mörkum og skoraði í heildina 44 mörk í 46 leikjum.

Hér má sjá skrúðgönguna hjá stuðningsmönnum Lyon.

Sjá einnig:
https://www.fotbolti.net/news/18-10-2022/benzema-naestelstur-til-ad-vinna-gullknottinn


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner