Arnór Sigurðsson spilaði sinn annan A-landsleik þegar Ísland gerði 2-2 jafntefli gegn Katar í vináttulandsleik í kvöld.
Þetta var síðasti leikur landsliðsins á árinu en liðið hefur farið í gegnum 13 leiki án sigurs.
Þetta var síðasti leikur landsliðsins á árinu en liðið hefur farið í gegnum 13 leiki án sigurs.
Lestu um leikinn: Katar 2 - 2 Ísland
„Það voru engin svaka gæði í þessum leik, hjá hvorugu liði. Við vorum meira með boltann og við stjórnuðum leiknum, án þess að fá mörg færi," sagði Arnór.
„Þetta eru örugglega flottustu mörk sem þessir gæar hafa skorað á ferlinum."
Arnór segir að lið Katar hafi ekki verið betra en íslenska liðið hafi átt von á.
„Alls ekki. Við vorum búnir að skoða þá vel og vissum að þeir væru með fínt lið og fína einstaklinga. Við hefðum átt að spila betur, vera harðari og hreyfanlegri. Þá hefðum við unnið þennan leik."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir